| NÝBÚAR Í LUNDI 2009 | |
|
|
|
Jæja kæru vinir! Þetta er heimasíða fjölskyldunnar sem flutti í haust frá Íslandi til Svíþjóðar. Gagnlegar upplýsingar fyrir ættingja og vini eru : Addý, Gummi og stelpur Tinghögsvägen 24 22240 Lund Sverige Móbíll: 0767 966 402 Heima 1: 0462630137 Heima 2: 4960007 (smartsími) *Ingibjörg Gróa* er frumburður foreldra sinna. Fædd 15.október 2002, eftir 40 vikur. Fæddist eldsnemma að morgni, eða um 6-leytið. Kom í heiminn eins og keisararynjum sæmir. Reyndist 19.5 merkur og 55 cm. *Anna Dagbjört* er nýfædd. Hún fæddist 12.maí 2007. Eftir 38 vikur. Stundvíslega kl.22:00. Þennan dag var jú kosningadagur og ekki síður Eurovisjóndagur sem er nánast heilagur í augum mömmu hennar. Mamman setti þó eurovisjónið glöð til hliðar fyrir tilkomu þessa litla sólargeisla. Öllum að óvörum gekk þessi fæðing með ágætum og reyndist "litla" krílið heldur minni en stóra systir eða 15 merkur og 53 cm. Foreldrarnir Eru Guðmundur Ómar Hafsteinsson og Arnfríður Henrýsdóttir. Við sáum þetta fallega ljóð á barnalandi og fannst það eiga svo vel litlu sólargeislanna okkar, hvorn um sig. SÓLSKINSBARN Hún er dökkhærð og lagleg Hún er ljúf eins og vor. Stráir ástríku yndi við hvert einasta spor. Hún er elskuð af öllum, og í athöfnum dygg. Hún er sólskinsbarn síglatt. Hún er saklaus og trygg.... Litlu stelpurnar okkar eru nokkuð líkar. Hún Inga fæddist með ógurlega mikið hár, knalldökkt eins og pabbi. Að auki stóð toppurinn vel upp í loftið svo enginn véfengdi faðernið ;) Í fyrstu voru augun dökk, eins og oftast er nú með nýbura en eru nú fallega blá. Sveipir í toppnum og liðir í hárinu undirstrika nú samt að þetta er dóttir mömmu sinnar. Hárið hefur lýst með tímanum. Anna Dagbjört fæddist 2 vikum fyrr en Inga. Hún er líka með dökkbrúna hárið frá pabba sínum og nóg af því, þó ekki nái það þykkt Ingu. Augun eru svo stór og dökk að maður getur gleymt sér í þeim. Hún virðist síglöð litla manneskjan og auðvelt að smitast af þessari kátínu. Að sama skapi er hún sístarfandi og hefur fest á henni gælunafnið "starfsmaður mánaðarins"! |
|
|
|
|
Inga leikskólastelpan okkar....
HVAÐ ÞÝÐA NÖFNIN OKKAR SYSTRANNA : Ingibjörg Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga. Gróa Nafn þetta er leitt af sögninni "að vaxa". ....semsagt, ég er konungborin og vaxandi og alltaf að bjarga fólki....úr vandræðum? Anna Anna kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð Dagbjört Dagbjört þýðir björt sem dagur. Það er myndað af forliðnum Dag- og viðliðnum -björt VOGIN 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. NAUTIÐ 20. apríl – 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því. *HÉR ERU HEIMASÍÐUR LÍTILLA VINA* Kolbeinn Ingi, Ragnhildur Katla og Henrý Þór Ágúst Bergmann & bræður Benedikt Árni Davíð Helgi Erla Hlín & Þorleifur Darri Eva Freyja Heimir Snær & litla systir Kolbrún Lára Marheiður = "Litla Skotta" Guðjón Ísak Nína Þorbjörg Óskar Ingi litli frændi Sonja Margrét Viktoría Rós & Christopher Einar Thelma Melsteð HEIMASÍÐAN VAR OPNUÐ 18. SEPTEMBER 2003 SVO... |
|
| Þú ert gestur nr. 30124 |